Umhverfisráðuneyti

1316/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð um bragðefni í matvælum, nr. 587/1993, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

a. töluliður 2. gr. orðast svo: efni sem ætluð eru til neyslu sem slík í óbreyttu formi eða enduruppleyst t.d. eftir frostþurrkun.

2. gr.

Við 4. gr. bætist eftirfarandi málsgrein: Óheimilt er að bæta efnunum sem talin eru upp í viðauka 1 í matvæli eða í bragðefni. Þau kunna að fyrirfinnast í matvælum, af náttúru­legum orsökum eða vegna notkunar bragðefna úr náttúrulegum hráefnum.

3. gr.

Á eftir 5. gr. komi ný grein, er verður 6. gr. svohljóðandi, og breytist greinatala annarra greina samkvæmt því:

Íblöndun koffíns er eingöngu heimil í þau matvæli sem fram koma í viðauka 2 og skal heildarmagn koffíns í vörunni eftir íblöndun ekki fara umfram það gildi sem þar kemur fram.

4. gr.

Í staði orðsins "Viðauki" í viðauka við reglugerðina komi: Viðauki 1.

5. gr.

Í stað orðsins "viðauka" í 4. gr. reglugerðarinnar komi: viðauka 1.

6. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi viðauki 2:

VIÐAUKI 2

Hámarksmagn koffíns í matvælum.

Efni

Drykkjarvörur

Önnur matvæli

Koffín

150 mg/l að hámarki

0



7. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli nr. 93/1995 sbr. og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 413/2005 um breytingu á reglugerð nr. 587/1993 um bragðefni í matvælum.

Umhverfisráðuneytinu, 21. desember 2007.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica