Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

596/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 674/1998 um megrunarfæði.

1. gr.

Í 7. gr. reglugerðarinnar fellur brott setningin: "Einnig er óheimilt að gefa til kynna að við notkun minnki hungurtilfinning eða að seddukennd aukist".

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og með hliðsjón af eftirtöldum gerðum sem vísað er til í II. viðauka, XII. kafla samningsins um Evrópska efnahagssvæðið; tilskipun nr. 2007/29/EB. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 5. júní 2008.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica