Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

846/2003

Reglugerð um gildistöku tiltekinna gerða Evrópusambandsins um bragðefni í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi og eru birtar sem fylgiskjöl 1-3 við reglugerð þessa:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2232/96/EB, um að ákveða málsmeðferð bandalagsins varðandi bragðefni sem notuð eða fyrirhugað er að nota í eða á matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/1997 frá 10. desember 1997 sem var birt í EES-viðbæti nr. 27, 9. júlí 1998.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1565/00/EB þar sem mælt er fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir vegna samþykktar matsáætlunar við beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2232/96. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 109/2001 frá 28. september 2001 sem var birt í EES-viðbæti nr. 23, 2. maí 2002.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 622/2002/EB um að setja frest til að afhenda upplýsingar um mat á efnafræðilega skilgreindum bragðefnum sem notuð eru í eða á matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 161/2002 frá 6. desember 2002 sem var birt í EES-viðbæti nr. 9, 13. febrúar 2003.

2. gr.

Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða sérreglum.

3. gr.

Um valdsvið og þvingunarúrræði fer samkvæmt 30. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum samanber og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995 samanber og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.

Umhverfisráðuneytinu, 10. nóvember 2003.

Siv Friðleifsdóttir.

Magnús Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.