Umhverfisráðuneyti

837/2000

Reglugerð um aðskotaefni í matvælum. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um aðskotaefni í matvælum.

 

I. KAFLI

Almenn ákvæði og skilgreiningar.

1. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar taka til aðskotaefna í matvælum. Reglugerðin gildir ekki um matvæli sem ætluð eru til útflutnings til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), nema þegar um er að ræða varnarefni í matjurtum og matvælum úr dýraríkinu. Þetta á þó ekki við um varnarefni í matjurtum þegar:

a)      Ríki utan EES krefst sérstakrar meðhöndlunar til að hindra að skaðlegar lífverur berist til þess.

b)      Meðhöndlun er nauðsynleg til að vernda vörur meðan á flutningi til og geymslu í ríki utan EES stendur.

 

2. gr.

Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:

Aðskotaefni eru efni sem berast í matvæli eða myndast í þeim og breyta eiginleikum, samsetningu, gæðum eða hollustu þeirra.

Varnarefni eru efni sem notuð eru m.a. gegn illgresi, sveppum og meindýrum við framleiðslu eða geymslu matvæla.

Varnarefnaleifar eru leifar af varnarefnum og umbrots-, niðurbrots- eða myndefnum þeirra.

Hámarksgildi er mesta magn aðskotaefna sem leyfilegt er í hverri þyngdar- eða lagareiningu matvæla eins og þau koma fyrir tilbúin til neyslu. Fyrir varnarefni í ávöxtum og grænmeti skal miða við þann hluta matvælanna sem tilgreindur er í viðauka 7. Fyrir þurrkaðar afurðir og þykkni af öðrum matvælum skal miða við hámarksgildi afurðarinnar í upprunalegu formi. Fyrir aðrar unnar vörur skal taka tillit til þynningar eða annarra breytinga sem geta orðið við vinnslu. Ef ekki eru gefin upp hámörk fyrir samsett matvæli skal fara eftir hámarksgildum fyrir viðkomandi hráefni í viðauka 2 en taka mið af hlutföllum hráefna og breytinga sem geta orðið við vinnslu.

Aðgerðarmörk sýna mesta leyfilegt frávik frá hámarksgildi vegna óvissu í sýnatöku og niðurstöðum rannsókna.

 

II. KAFLI

Magn aðskotaefna.

3. gr.

Óheimilt er að framleiða eða dreifa matvælum sem innihalda aðskotaefni umfram hámarksgildi sem fram koma í viðaukum 2-5. Þrátt fyrir ákvæði þetta getur Hollustuvernd ríkisins heimilað dreifingu vörutegunda sem innihalda aðskotaefni allt að aðgerðarmörkum, sbr. viðauka 1.

 

4. gr.

Þegar hámarksgildi tiltekinna aðskotaefna eru ekki tilgreind fyrir ákveðna vörutegund í viðaukum 2 og 3, en rannsóknir sýna að efnin finnast í vörutegundinni, er hámarksgildi jafnt hæsta magni sem leyft er fyrir viðkomandi efni.

Þegar hámarksgildi ákveðinna aðskotaefna eru ekki tilgreind í viðaukum þessarar reglugerðar, en rannsóknir sýna að þau finnast í matvælum, þá skal hámarksgildi fyrir hvert efni vera 0,01 mg/kg. 

Þegar gildi í viðauka 2 er sett fyrir tiltekinn flokk grænmetis eða ávaxta gildir það fyrir allan flokkinn, nema þar sem sérstök gildi eru sett fyrir tilteknar afurðir.

 

5. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. er Hollustuvernd ríkisins heimilt að leyfa tímabundna sölu matvæla, sem innihalda þau efni sem um ræðir, þegar ekki er talin hætta á heilsutjóni vegna neyslu þeirra. Í slíkum tilvikum skal stofnunin ákvarða hámarksgildi fyrir þessi efni í viðkomandi matvælum.

 

6. gr.

Fyrir 1. júní ár hvert skal Hollustuvernd ríkisins afla upplýsinga um framkvæmd og niðurstöður eftirlits með nítrati í salati og spínati og einnig um þær aðgerðir sem beitt hefur verið til að draga úr magni nítrats og hvaða reglur gilda um góða framleiðsluhætti í framleiðslu á þessum afurðum. Þá er stofnuninni heimilt að veita tímabundna undanþágu fyrir dreifingu á salati og spínati sem inniheldur nítrat í magni umfram hámarksgildi í viðauka 4, ef tryggt er að góðir framleiðsluhættir eru viðhafðir til að ná fullnægjandi árangri í lækkun á magni nítrats.

 

III. KAFLI

Eftirlit og rannsóknir.

7. gr.

Eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt skal vera í samræmi við IV. kafla reglugerðar nr. 522/1994 um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla, með síðari breytingum.

 

8. gr.

Aðferðir við sýnatöku og aðra meðhöndlun sýna fyrir rannsóknir á aðskotaefnum í ávöxtum og grænmeti skulu vera í samræmi við viðauka 6 með þessari reglugerð. Aðferðir við sýnatöku og aðra meðhöndlun sýna fyrir rannsóknir á aðskotaefnum í öðrum matvælum skulu, eftir því sem við á, vera í samræmi við staðla Alþjóðlega staðalskrárráðsins fyrir matvæli (Codex Alimentarius) eða samkvæmt ákvörðun Hollustuverndar ríkisins.

 

9. gr.

Sýnataka vegna eftirlits með sveppaeitri í matvælum skal framkvæmd í samræmi við ákvæði í tilskipun 98/53/EB. Greining skal framkvæmd með þeirri aðferð sem þar kemur fram eða annarri aðferð sem telst sambærileg.

 

10. gr.

Hafi eftirlitsaðili ástæðu til að ætla að tiltekin matvæli innihaldi aðskotaefni umfram leyfileg hámarksgildi, eða sem geti valdið tjóni á heilsu, þá er honum heimilt í samráði við viðkomandi yfirvöld að stöðva afgreiðslu og aðra dreifingu vörunnar. Slíkar ástæður geta t.d. verið vegna fyrri athugana á matvælum frá sama framleiðslustað, sama ræktunarsvæði eða sama vinnsluaðila, eða vegna tilkynninga erlendis frá. Ef innflytjandi, framleiðandi eða dreifingaraðili óskar eftir því að fá að dreifa slíkri vöru, þá skal eftirlitsaðili meta hvaða rannsóknir eru nauðsynlegar til þess að ganga úr skugga um heilnæmi hennar. Rannsóknir skulu vera á kostnað þess aðila sem óskar dreifingar vörunnar.

 

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði og gildistaka.

11. gr.

Innlendur framleiðandi eða innflytjandi er ábyrgur fyrir því að vörutegundir sem hér eru á markaði séu í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar.

 

12. gr.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

 

13. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað er til í II. viðauka XII. kafla, 4. tölul. tilskipun 67/427/EBE, 12. tölul. tilskipun 76/621/EBE, 13. tölul. tilskipun 76/895/ EBE, 20. tölul. tilskipun 79/700/EBE, 27. tölul. tilskipun 80/891/EBE, 38. tölul. tilskipun 86/362/EBE, 39. tölul. tilskipun 86/363/EBE, 54. tölul. tilskipun 90/642/EBE, tilskipun 93/57/EBE, tilskipun 93/58/EBE, tilskipun 94/29/EBE, tilskipun 94/30/EBE, tilskipun 95/38/EB, tilskipun 95/39/EB, tilskipun 95/61/EB, tilskipun 96/32/EB, tilskipun 96/33/EB, tilskipun 97/41/EB, tilskipun 97/71/EB, reglugerð 194/97/EB, reglugerð 98/53/ EB, reglugerð 1525/98/EB, tilskipun 98/82/EB, tilskipun 99/71/EB, reglugerð 864/1999/EB, reglugerð 1566/1999/EB, tilskipun 2000/24/EB, tilskipun 2000/42/EB og tilskipun 2000/48/EB. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 518/1993 um aðskotaefni í matvælum með síðari breytingum.

 

Umhverfisráðuneytinu, 2. nóvember 2000.

 

Siv Friðleifsdóttir.

Ingimar Sigurðsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica