Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

188/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 168/2000 um skilyrði fyrir löggildingu iðnmeistara samkvæmt 10. tölul. í ákvæði til bráðabirgða laga nr. 73/1997, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað orðanna "1. júlí 2001" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. september 2001.

2. gr.

2. málsliður 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í nefndinni eiga sæti fulltrúi tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, fulltrúi tilnefndur af Skipulagsstofnun, fulltrúi tilnefndur af Meistarafélagi húsasmiða, fulltrúi án tilnefningar sem skal vera formaður og jafn margir varamenn.

3. gr.

11. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: A.m.k. 5 kennslustundir í lausn verkefna, þar sem þátttakendur sanna kunnáttu sína í ofangreindum atriðum. Skal það gert í samráði við nefnd skv. 2. gr.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 10. tölul. í ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 73/1997 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 8. mars 2001.

Siv Friðleifsdóttir.

Magnús Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.