2. málsl. 5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Árið 2026 er rjúpnaveiði heimil frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan hvers veiðisvæðis með eftirfarandi hætti:
| a. | Austurland | 23. október - 22. desember |
| b. | Norðausturland | 23. október - 1. desember |
| c. | Norðvesturland | 23. október - 17. nóvember |
| d. | Suðurland | 23. október - 17. nóvember |
| e. | Vesturland | 23. október - 1. desember |
| f. | Vestfirðir | 23. október - 24. nóvember |
Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 24. ágúst 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Björn Helgi Barkarson.
B deild - Útgáfudagur: 7. september 2026