Eftirfarandi breyting er gerð á viðauka 2 við reglugerðina:
Í B-hluta er eftirfarandi færslu bætt við milli færslnanna fyrir magnesíumasetýltárat og ferrókarbónat: magnesíum-L-þreónat.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2225 frá 5. nóvember 2025 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB að því er varðar magnesíum-L-þreónat sem magnesíumgjafa sem er notað við framleiðslu fæðubótarefna.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. maí 2026.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Donika Kolica.
B deild - Útgáfudagur: 22. maí 2026