Reglugerð þessi gildir um starfshætti og hlutverk ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur.
Ráðherra skipar í ráðgjafanefndina í samræmi við ákvæði 6. gr. laga um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, til þriggja ára í senn.
Ráðgjafanefndin skal veita umsagnir samkvæmt lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, og vera ráðherra og Umhverfis- og orkustofnun til ráðgjafar varðandi þennan málaflokk.
Hlutverk nefndarinnar er:
Að vera ráðherra og Umhverfis- og orkustofnun til ráðgjafar um framkvæmd laga um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996;
Að vera Umhverfis- og orkustofnun til ráðgjafar um fræðslu um erfðabreytingar, erfðabreyttar lífverur og áhrif þeirra á umhverfið;
Að gera tillögur til ráðherra um allt sem horfir til betri vegar í málaflokknum;
Að vera umsagnaraðili um reglugerðir sem ráðherra setur samkvæmt ákvæðum laga um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996;
Að vera umsagnaraðili um umsóknir, sbr. 3. gr.
Að vera Umhverfis- og orkustofnun til ráðgjafar um varnir gegn slysum sem kunna að verða vegna erfðabreyttra lífvera.
Að gera ársskýrslu, sbr. 5. gr.
Leita skal umsagnar ráðgjafanefndar áður en endanleg ákvörðun er tekin eða leyfi veitt fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera, þ.e. starfsemi sem fellur undir reglugerð um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera svo og annarra lífvera, nr. 275/2002, sbr. reglugerð um afmarkaða notkun erfðabreyttra lífvera, annarra en örvera, nr. 276/2002. Hið sama gildir um umsóknir um leyfi til sleppingar eða dreifingar og markaðssetningar erfðabreyttra lífvera á Íslandi, sbr. reglugerð um sleppingar eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera, nr. 728/2011.
Ráðgjafanefndin veitir ekki umsögn um fyrsta áhættuflokk.
Nefndin skal skila umsögn um umsóknir fyrir afmarkaða notkun innan 30 daga frá því hún fær umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og orkustofnun, en 45 daga þegar um innlenda sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu er að ræða.
Ráðgjafanefndin skal funda eftir því sem ástæða þykir til, en þó eigi sjaldnar en tvisvar á ári.
Hver nefndarmaður fer með eitt atkvæði á fundum. Ákvarðanataka er lögleg þegar formaður eða varaformaður og a.m.k. 4 nefndarmenn sitja fund. Verði ágreiningur um afgreiðslu mála skal einfaldur meirihluti atkvæða ráða.
Umhverfis- og orkustofnun annast daglegan rekstur og umsýslu nefndarinnar. Umhverfis- og orkustofnun leggur nefndinni til starfsmann sem sér m.a. um fundarboðun og fundarritun. Fundir nefndarinnar eru haldnir með rafrænum hætti nema formaður telji sérstaka þörf á staðfundi og leggur Umhverfis- og orkustofnun þá til fundarherbergi.
Nefndin skal veita Umhverfis- og orkustofnun og ráðuneytinu upplýsingar um störf sín með fundargerðum og ársskýrslum.
Formaður skal gera drög að ársskýrslu í samráði við starfsmann Umhverfis- og orkustofnunar.
Nefndarmönnum í ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur er óheimilt að greina frá trúnaðarupplýsingum sem þeir kunna að komast að vegna starfa sinna í nefndinni. Óheimilt er að greina frá umsóknum sem dregnar hafa verið til baka.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal ekki fara með sem trúnaðarmál upplýsingar um atriði sem varðað geta heilsu manna eða raskað umhverfinu svo og upplýsingar um aðferðir og áætlanir um eftirlit með erfðabreyttum lífverum og viðbrögð í neyðartilfellum.
Á meðan mál eru til umfjöllunar í nefndinni skulu nefndarmenn ekki gera einstaka þætti þeirra opinbera án samráðs við formann eða þann sem óskaði trúnaðar.
Trúnaðarskylda helst þótt látið sé af setu í nefndinni.
Ráðuneytið greiðir þóknun nefndarmanna.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 6. gr. laga um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur, nr. 68/1998.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. mars 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 24. mars 2026