Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

578/2025

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Við 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3229 frá 18. október 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 að því er varðar breytingar á tilflutningi raf- og rafeindabúnaðarúrgangs sem eru samþykktar samkvæmt Basel-samningnum, sem vísað er til í undirlið við lið 32c í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 112/2025, þann 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 100-103.

 

2. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3229 frá 18. október 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 að því er varðar breytingar á tilflutningi raf- og rafeindabúnaðarúrgangs sem eru sam­þykktar samkvæmt Basel-samningnum.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 43. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, tekur þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica