Félagsmálaráðuneyti

667/2021

Reglugerð um (10.) breytingu á byggingarreglugerð, nr. 112/2012.

Stofnreglugerð:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6.12.8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Fyrirsögn ákvæðisins verður svohljóðandi: Sorpgerði og sorpskýli.
  2. 1. mgr. orðast svo: Sorpgerði og sorpskýli skulu ekki vera fjær inngangi byggingar en sem svarar 25 m.

 

2. gr.

Í stað orðanna "umhverfis- og auðlindaráðherra" í 2. mgr. 8.3.2. gr. reglugerðarinnar kemur: ráðherra.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt 1. mgr. 60. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 4. júní 2021.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica