Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

800/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum.

1. gr.

5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Heimilt er að veiða rjúpu árin 2016-2018 eftirtalda 12 daga á ári:

Árið 2016:

föstudaginn 28. október, laugardaginn 29. október og sunnudaginn 30. október,
föstudaginn 4. nóvember, laugardaginn 5. nóvember og sunnudaginn 6. nóvember,
föstudaginn 11. nóvember, laugardaginn 12. nóvember og sunnudaginn 13. nóvember,
föstudaginn 18. nóvember, laugardaginn 19. nóvember og sunnudaginn 20. nóvember.

Árið 2017:

föstudaginn 27. október, laugardaginn 28. október og sunnudaginn 29. október,
föstudaginn 3. nóvember, laugardaginn 4. nóvember og sunnudaginn 5. nóvember,
föstudaginn 10. nóvember, laugardaginn 11. nóvember og sunnudaginn 12. nóvember,
föstudaginn 17. nóvember, laugardaginn 18. nóvember og sunnudaginn 19. nóvember.

Árið 2018:

föstudaginn 26. október, laugardaginn 27. október og sunnudaginn 28. október,
föstudaginn 2. nóvember, laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember,
föstudaginn 9. nóvember, laugardaginn 10. nóvember og sunnudaginn 11. nóvember,
föstudaginn 16. nóvember, laugardaginn 17. nóvember og sunnudaginn 18. nóvember.

Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. september 2016.

Sigrún Magnúsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica