Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

960/2014

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“). - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr.:

a. Stafliðir a-w verða að töluliðum 1-23.

b. Við bætast 3 nýir töluliðir, svohljóðandi:

 

24)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 848/2012 frá 19. september 2012 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), nánar tiltekið fenýlkvikasilfurssambönd, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2014 frá 28. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 375-377.

 

25)

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 254/2013 frá 20. mars 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008 um þóknanir og gjöld sem greiða ber til Efnastofnunar Evrópu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zf, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2014 frá 28. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 378-389.

 

26)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 301/2014 frá 25. mars 2014 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), nánar tiltekið sexgild krómsambönd, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2014 frá 26. september 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 64 frá 30. október 2014 bls. 296-298.



2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 848/2012 frá 19. september 2012 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), nánar tiltekið fenýlkvikasilfurssambönd.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 254/2013 frá 20. mars 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008 um þóknanir og gjöld sem greiða ber til Efnastofnunar Evrópu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðs­ins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 301/2014 frá 25. mars 2014 sem breytir XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), nánar tiltekið sexgild krómsambönd.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í stafliðum b og c. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr., sbr. 2. mgr. 22. gr. og 1. mgr. 26. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 30. október 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica