Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

715/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á I. viðauka:

a. Í stað tölunnar 0 í töflu í 1. tölul. kemur 3.
b. 2. málsliður 2. tölul. fellur brott.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæði 13. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. júlí 2014.

F. h. r.

Hugi Ólafsson.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica