Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

225/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 664/2012, um Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn o.fl.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

 

a)

Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

   

Að auki skal fulltrúi sveitarfélaga á svæðinu eiga sæti í fagráðinu.

 

b)

1. málsl. 2. mgr. orðast svo:

   

Fagráðið skal vera forstöðumanni náttúrurannsóknastöðvarinnar til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknastefnu, upplýsingagjöf til heimamanna og almenings og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rannsóknir á vatna­sviði Mývatns og Laxár í samræmi við lög.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 7. og 8. gr. laga nr. 97/2004, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og öðlast gildi við birtingu.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 19. febrúar 2014.

F. h. r.

Stefán Thors.

Jón Geir Pétursson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica