1. gr.
Við 8. gr. bætast 3 nýir stafliðir; n-, o- og p-liður, sem orðast svo:
n) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 109/2012 frá 9. febrúar 2012 sem breytir viðauka XVII við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2012 frá 28. september 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/04, bls. 177-225. |
o) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 125/2012 frá 14. febrúar 2012 sem breytir viðauka XIV við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2012 frá 28. september 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/05, bls. 226-229. |
p) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 412/2012 frá 15. maí 2012 sem breytir viðauka XVII við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2012 frá 26. október 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 7. febrúar 2013, 2013/EES/9/12, bls. 254-256. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 4. mars 2013.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.