389/2012
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.
1. gr.
Á eftir d-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður (e.) svohljóðandi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 664/2011 frá 11. júní 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs í því skyni að bæta tilteknum blöndum úrgangs við í III. viðauka A við hana, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2012 frá 30. mars 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 26. apríl 2012 - 2012/EES/24/19 bls. 438-440.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 20. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 27. apríl 2012.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.