Umhverfisráðuneyti

833/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 708/2008 um þvotta- og hreinsiefni. - Brottfallin

1. gr.

Við 5. gr. bætist nýr stafliður, c-liður, sem orðast svo:

c)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 551/2009 frá 25. júní 2009 um breytingu V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni (undanþága að því er varðar yfirborðsvirk efni), sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2010, þann 11. júní 2010. Reglugerðin er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari.



2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 15. október 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica