Umhverfisráðuneyti

681/2005

Reglugerð um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um merkingu matvæla og innihaldsefna matvæla með viðbættum jurtasterólum, jurtasterólestrum, jurtastanólum og/eða jurtastanólestrum. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:


Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 608/2004 frá 31. mars 2004 um merkingu matvæla og innihaldsefna matvæla með viðbættum jurtasterólum, jurtasterólestrum, jurtastanólum og/eða jurtastanólestrum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163 frá 3. desember 2004 og var birt í EES-viðbætum 26. maí 2005.


Framangreind EB-gerð er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.


2. gr.

Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða sérreglum.


3. gr.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum samanber og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.


4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, samanber og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 1. júlí 2005.


F. h. r.

Magnús Jóhannesson.
Kristín L. Árnadóttir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica