Umhverfisráðuneyti

870/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 748/2003 um snyrtivörur. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

3. gr. orðast svo:
Snyrtivörur mega ekki, við eðlilega notkun, vera skaðlegar heilsu manna.

Óheimilt er að framleiða, flytja inn, selja eða dreifa snyrtivörum sem innihalda efni sem flokkast sem Carc 1 eða 2, Rep 1 eða 2, Mut 1 eða 2 og fá varnaðarmerkin sterkt eitur (Tx) eða eitur (T) samkvæmt reglugerð um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda, sem innihalda slík efni.

Snyrtivörur sem innihalda önnur eiturefni í það miklu magni að þær flokkast sem eitur, samkvæmt reglugerð um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda, sem innihalda slík efni, mega ekki vera á markaði til almenningsnota, nema það sé sérstaklega heimilað annars staðar í þessari reglugerð.


2. gr.

Stafliður c) í 7. gr. orðast svo:
Lágmarksgeymsluþol, með orðunum: "best fyrir" og þar á eftir annaðhvort dagsetning eða upplýsingar um hvar dagsetninguna er að finna á umbúðunum.
Dagsetningin skal vera greinileg og tilgreina annaðhvort mánuð og ár eða dag, mánuð og ár, í þeirri röð. Ef nauðsynlegt er skal bæta við þessar upplýsingar ábendingu um skilyrði sem þarf að uppfylla til að hægt sé að ábyrgjast tilgreint geymsluþol.

Upplýsingar um dagsetningu fyrir geymsluþol þarf ekki fyrir snyrtivörur sem hafa meira geymsluþol en 30 mánuði. Fyrir slíkar vörur skal tilgreina tímabilið sem notandinn getur notað vöruna sér að skaðlausu eftir að umbúðirnar hafa verið opnaðar. Tilgreina skal þessar upplýsingar með tákninu sem birt er í 9. viðauka og á eftir því skal koma tímabilið í mánuðum og/eða árum.


3. gr.

9. gr. orðast svo:
Innihaldsefni sem skráð eru á ílát og umbúðir skal tilgreina með heiti í samræmi við nafnakerfi fyrir innihaldsefni snyrtivara INCI1. Ef slíkt heiti er ekki til skal nota efnaheiti, CTFA2-heiti, heiti í Evrópsku lyfjaskránni, heiti samkvæmt tilmælum WHO3, EINECS4-, IUPAC5-, CAS6- eða CI7-númer (litaskrárnúmer).

Fyrir efnablöndur sem gefa ilm og angan og þau hráefni sem þær eru unnar úr nægir að nota orðin "ilmefni" eða "lyktarefni" ("perfume" eða "aroma"), þar sem þeirra er getið í lista yfir innihaldsefni, sbr. g) lið 7. gr. Þó skal geta þeirra efna með nafni sem krafist er að tilgreind séu í dálkinum "aðrar takmarkanir og kröfur" í 3. viðauka.

Fyrir snyrtivörur sem framleiddar eru í mörgum litbrigðum er heimilt að skrá öll litarefni á merkimiðann að því tilskildu að orðunum "getur innihaldið" ("may contain") eða tákninu "+/-" sé bætt við fyrir framan.
_________
1. INCI: International Nomenclature Cosmetic Ingredient.
2. CTFA: Cosmetic, Toiletry and Fragrance Association in USA.
3. WHO: World Health Organization – Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin.
4. EINECS: European Inventory of Existing Commercial Chemical Substances – Evrópuskrá yfir markaðssett efni.
5. IUPAC: International Union of Pure and Applied Chemistry.
6. CAS: Chemical Abstract Service.
7. CI: Color-Index – Litaskrá, sbr. Rowe Index, 3. útgáfa, Society of Dyers and Colourists, Bradford, England 1979.


4. gr.

Stafliður d) í 19. gr. orðast svo:
Mat á öryggi fullunninnar snyrtivöru með tilliti til heilsu manna. Taka skal mið af efnafræðilegri byggingu og áhrifum innihaldsefna á heilsu ásamt notkunarsviði vörunnar. Taka skal sérstakt tillit til þess hvar á líkamann varan skal notuð og hver markhópurinn er. Meðal annars skal vera sérstakt mat fyrir snyrtivörur sem ætlaðar eru börnum yngri en þriggja ára og fyrir snyrtivörur sem eingöngu eru ætlaðar til notkunar útvortis á viðkvæmum stöðum líkamans.


5. gr.

Í 2. viðauka breytast færslur, sbr. fylgiskjal 1 við reglugerð þessa.


6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. viðauka:

a) Í 3. viðauka A breytast færslur, sbr. fylgiskjal 2 við reglugerð þessa.
b) Við 3. viðauka A bætast ný efni, sbr. fylgiskjal 3 við reglugerð þessa.
c) Í 3. viðauka B falla út efni með EB-tilvísunarnúmer 61 og 62 (musk xýlen og musk keton).
d) Dagsetningar í 3. viðauka B, h-dálki, ("Leyfilegt til") breytast á efnum með EB-tilvísunarnúmer 1-60 og verða 31.12.2005 í stað 30.09. 2004.


7. gr.

Í 5. viðauka breytist ein færsla sbr. fylgiskjal 4 við reglugerð þessa.


8. gr.

Við bætist nýr viðauki, 9. viðauki, sbr. fylgiskjal 5 við reglugerð þessa.


9. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 17. gr. A laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi tilskipunum um breytingar á tilskipun 76/768/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna um snyrtivörur:

a. Tilskipun 2003/80/EB, sem vísað er til í tl. 12, XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2004, þann 22. apríl 2004.
b. Tilskipun 2003/83/EB, sem vísað er til í tl. 13, XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2004, þann 22. apríl 2004.
c. Tilskipun 2004/87/EB.
d. Tilskipun 2004/88/EB.

Einnig var höfð hliðsjón af tilskipun 2003/15/EB, um breytingu á tilskipun 76/768/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna um snyrtivörur, sem vísað er til í tl. 1, XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2004, þann 9. júní 2004 og tilskipun 2004/93/EB, um breytingu á tilskipun 76/768/EBE.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.


Ákvæði til bráðabirgða.

Heimilt er til 11. mars 2005 að setja á markað snyrtivörur sem ekki uppfylla ákvæði 2. mgr. 2. gr. reglugerðar þessarar.

Breytingar á færslum með EB-tilvísunarnúmer 14 og 60-62 í fylgiskjali 2 með reglugerð þessari og ákvæði um ný efni með EB-tilvísunarnúmer 93-95 í fylgiskjali 3 með reglugerð þessari öðlast gildi 24. mars 2005. Sex mánuðum frá gildistöku framangreindra breytinga á viðauka 3 A í fylgiskjali 2 og 3 með reglugerð þessari er með öllu óheimilt að selja snyrtivörur sem ekki uppfylla þær kröfur.

Fylgiskjal 4 með reglugerð þessari öðlast gildi 24. mars 2005. Sex mánuðum frá gildistöku framangreindrar breytingar á 5. viðauka í fylgiskjali 4 með reglugerð þessari er með öllu óheimilt að selja snyrtivörur sem ekki uppfylla þær kröfur.


Umhverfisráðuneytinu, 28. október 2004.

Sigríður Anna Þórðardóttir.
Magnús Jóhannesson.

Fylgiskjal 1.

Í 2. viðauka fellur niður færsla nr. 382 (EB tilvísunarnúmer) og færslur nr. 178, 289 og 411 breytast og orðast svo:

CAS-nr.
EB
tilvísunar-númer
a
b
c
4-bensýloxýfenól
103-16-2
178
4-etoxýfenól
622-62-8
178
blý og sambönd þess
7439-92-1
289
sek-alkýl- og alkanólamín og sölt þeirra
411



Fylgiskjal 2.

Í 3. viðauka A fellur niður færsla nr. 55 (EB tilvísunarnúmer) og færslur nr. 2a, 14, 22, 60, 61 og 62 breytast og orðast svo:

Efni
CAS-nr.
Notkunarsvið
Leyfilegur hámarksstyrkur í fullunninni snyrtivöru
Aðrar takmarkanir og kröfur
Notkunarreglur og varnaðarorð sem skylt er að prenta á umbúðir
EB tilvísunar-númer
a
b
c
d
e
f
g
Thioglycolic Acid
þíóglýkólsýra og sölt hennar
68-11-1 a) vörur til hárliðunar - eða afliðunar:
1) til almennings nota

2) til faglegra nota

b) háreyðingarvörur

c) aðrar hársnyrtivörur sem skolað er burt eftir notkun
a)

1) 8% tilbúið til notkunar pH 7 - 9,5
2) 11% tilbúið til notkunar pH 7 - 9,5
b) 5% tilbúið til notkunar pH 7 - 12,7
c) 2% tilbúið til notkunar pH 6-9,5
reiknað sem þíóglýkólsýra
Í notkunarleiðbeiningum skulu eftirfarandi varnaðarsetningar koma fram á íslensku:
a), b) og c)
Varist snertingu við augu. Berist efnið í augu, skolið þá strax vandlega með miklu vatni og leitið læknis.
a) og c)
Notið viðeigandi hlífðarhanska.
a), b) og c)
Inniheldur þíóglýkólat.
Fylgið meðfylgjandi notkunarleiðbeiningum.
Geymist þar sem börn ná
ekki til.
(Þar að auki fyrir) a) 2)
Aðeins fyrir fagfólk.
2a
Hydroquinone
1,4-díhýdroxýbensen
123-31-9 a) oxandi hárlitunarefni
1) til almennings nota



2) til faglegra nota



b) til nota á gervineglur
0,3%









0,02% (eftir blöndun til notkunar)
Aðeins fyrir fagfólk. a)
1) Inniheldur 1,4-díhýdroxýbensen.
Óheimilt að nota til litunar augnhára eða augabrúna.
Berist efnið í augu, skolið þá strax vandlega.
2) Aðeins fyrir fagfólk.
Inniheldur 1,4-díhýdroxýbensen.
Berist efnið í augu, skolið þá strax vandlega.
b) Aðeins fyrir fagfólk.
Varist snertingu við húð.
Fylgið nákvæmlega meðfylgjandi notkunarleiðbeiningum.
14
Resorcinol
1,3-díhýdroxýbensen
108-46-3 a) oxandi hárlitunarefni
1) til almennings nota




2) til faglegra nota


b) hársnyrtivökvar og hárþvottalegir
a) 5%








b) 0,5%
a)
1) Inniheldur 1,3-díhýdroxý-bensen. Skolið hárið vandlega eftir notkun. Má ekki nota til litunar augnhára eða augabrúna. Berist efnið í augu, skolið þá strax vandlega.
2) Inniheldur 1,3-díhýdroxý-bensen. Aðeins fyrir fagfólk.
Berist efnið í augu, skolið þá strax vandlega.
b) Inniheldur
1,3-díhýdroxýbensen
22
Fatty Acid Dialkylamides og Dialkanolamides
fitusýrudíalkýlamíð og fitusýrudíalkanólamíð
0,5% sek-amín Óheimilt að blanda saman við nítróserandi efni.
Hámarksstyrkur sek-amína 5% fyrir hráefni.
Hámarksstyrkur nítrósó-amína 50 g/kg.
Geymist í ílátum sem ekki innihalda nítrít.
60
Monoalkylamines, Monoalkanolamine og sölt þeirra
mónóalkýlamín, mónóalkanólamín og sölt þeirra
0,5% sek-amín Lágmarks hreinleiki 99%.
Hámarksstyrkur sek-amína 0,5% fyrir hráefni.
Hámarksstyrkur nítrósó-amína 50 g/kg.
Óheimilt að nota með nítróserandi efnum.
Geymist í ílátum sem ekki innihalda nítrít.
61
Trialkylamines, Trialkanolamines og sölt þeirra
tríalkýlamín, tríalkanólamín og sölt þeirra
a) vörur sem ekki er
skolað burt eftir notkun

b) aðrar vörur
a) 2,5% a) og b)
Óheimilt að nota með nítróserandi efnum.
Lágmarks hreinleiki 99%.
Hámarksstyrkur sek-amína 0,5% fyrir hráefni.
Hámarksstyrkur nítrósó-amína 50 g/kg.
Geymist í ílátum sem ekki innihalda nítrít.
62


Fylgiskjal 3.

Í 3. viðauka A bætast við færslur nr. 67 – 97 í stafrófsröð og orðast svo:

Efni
CAS-nr.
Notkunarsvið
Leyfilegur hámarksstyrkur í fullunninni snyrtivöru
Aðrar takmarkanir og kröfur
Notkunarreglur og varnaðarorð sem skylt er að prenta á umbúðir
EB tilvísunar-númer
a
b
c
d
e
f
g
Amyl Cinnamal
amýlsinnamal
122-40-7 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
67
Benzyl Alcohol
bensýlalkóhól
100-51-6 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
68
Cinnamyl Alcohol
sinnamýlalkóhól
104-54-1 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
69
Citral
sítral
5392-40-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
70
Eugenol
evgenól
97-53-0 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
71
Hydroxycitronellal
hýdroxýsítrónellal
107-75-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
72
Isoeugenol
ísóevgenól
97-54-1 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
73
Amyl Cinnamyl Alcohol
amýlsinnamýlalkóhól
101-85-9 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
74
Benzyl Salicylate
bensýlsalisýlat
118-58-1 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
75
Cinnamal
sinnamal
104-55-2 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
76
Coumarin
kúmarín
91-64-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
77
Geraniol
geraníól
106-24-1 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
78
--
hýdroxýmetýlpentýlsýkló-hexenkarboxaldehýð
31906-04-4 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
79
--
anísýlalkóhól
105-13-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
80
Benzyl Cinnamate
bensýlsinnamat
103-41-3 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
81
Farnesol
farnesól
4602-84-0 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
82
--
2-(4-tert-bútýlbensýl)própíonaldehýð
80-54-6 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
83
Linalool
línalól
78-70-6 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
84
Benzyl Benzoate
bensýlbensóat
120-51-4 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
85
Citronellol
sítrónellól
106-22-9 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
86
--
hexýlsinnamaldehýð
101-86-0 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
87
--
d-límonen
5989-27-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
88
--
metýlheptínkarbónat
111-12-6 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
89
--
3-metýl-4-(2,6,6-trímetýl-2-sýklóhexen-1-ýl)-3-búten-2-on
127-51-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
90
--
eikarmosakjarni
90028-68-5 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
91
--
trjámosakjarni
90028-67-4 Geta skal efnisins í lista yfir innihaldsefni, sbr. 2. mgr. 9. gr., þegar styrkur þess er hærri en:
- 0,01% í vörum sem skolað er burt eftir notkun
- 0,001% í öðrum vörum
92
--
2,4-díamínó-pýrimidín-3-oxíð
74638-76-9 hársnyrtivörur 1,5%
93
--
bensóýlperoxíð
94-36-0 til notkunar á gervineglur 0,7% eftir blöndun Aðeins fyrir fagfólk Aðeins fyrir fagfólk.
Varist snertingu við húð.
Fylgið nákvæmlega meðfylgjandi notkunarleiðbeiningum.
94
--
4-metoxýfenól
150-76-5 til notkunar á gervineglur 0,02% eftir blöndun Aðeins fyrir fagfólk Aðeins fyrir fagfólk.
Varist snertingu við húð.
Fylgið nákvæmlega meðfylgjandi notkunarleiðbeiningum.
95
Musk Xylen
musk xýlen
81-15-2 allar snyrtivörur að undanteknum vörum til munnhirðu a) 1,0% í ilmvötnum
b) 0,4% í Kölnarvatni
c) 0,03% í öðrum vörum
96
Musk Ketone
musk keton
81-14-1 allar snyrtivörur að undanteknum vörum til munnhirðu a) 1,4% í ilmvötnum
b) 0,56% í Kölnarvatni
c) 0,042% í öðrum vörum
97


Fylgiskjal 4.

Í 5. viðauka breytist færsla nr. 36 og orðast svo:

Efni
CAS-nr.
Leyfilegur
hámarksstyrkur
Aðrar takmarkanir og kröfur
Notkunarreglur og varnaðarorð sem skylt er að prenta á umbúðir
EB tilvísunar-númer
a
b
c
d
e
f
Methyldibromo Glutaronitrile
1,2-díbróm-2,4-dísýanóbútan
35691-65-7 0,1% Má aðeins nota í vörur sem skolað er burt eftir notkun
36


Fylgiskjal 5.

9. VIÐAUKI
Tákn sem gefur til kynna takmarkaðan geymslutíma snyrtivöru eftir
að umbúðir hafa verið opnaðar. Á aðeins við um snyrtivörur
með geymslutíma sem er lengri en 30 mánuðir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica