Umhverfisráðuneyti

49/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Fimmtándi liður í 9. tölulið í fylgiskjali 2 orðast svo:

9.15. Rekstur aðstöðu í atvinnuskyni, þ.m.t. útleiga rýmis, fyrir hávaðasama starfsemi sem veldur truflun eða óþægindum.

4-5

2. gr.

Nýr liður bætist við 9. tölulið í fylgiskjali 2 og orðast svo:

9.16. Önnur sambærileg starfsemi.
1-5

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 17. janúar 2001.

Siv Friðleifsdóttir.
Magnús Jóhannesson.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica