Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1263/2025

Reglugerð um (19.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1222 frá 2. apríl 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum, sem vísað er til í tl. 12zze XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2025, þann 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 329-339.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1222 frá 2. apríl 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. nóvember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica