Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1262/2025

Reglugerð um (31.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/457 frá 10. mars 2025 um endurnýjun á samþykki fyrir dínótefúrani sem virku efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzzzzzzzzy XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2025, þann 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 314-317.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/457 frá 10. mars 2025 um endurnýjun á samþykki fyrir dínótefúrani sem virku efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18 í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. nóvember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica