Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

577/2025

Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  89) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2055 frá 25. september 2023 um breyt­ingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi tilbúnum fjölliðuörögnum) við reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla II. viðauka samn­ingsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 74-95.
  90) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2492 frá 23. september 2024 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 að því er varðar prófunaraðferðir til að laga þær að tækni­framförum, sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 594-603.
 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2055 frá 25. september 2023 um breyt­ingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi tilbúnum fjölliðuörögnum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2492 frá 23. september 2024 um breyt­ingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 að því er varðar prófunaraðferðir til að laga þær að tækni­framförum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica