Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

575/2025

Reglugerð um (23.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  87) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1328 frá 16. maí 2024 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi oktametýlsýklótetrasíloxani (D4), dekametýlsýkló­pentasíl­oxani (D5) og dódekametýlsýklóhexasíloxani (D6)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðs­ins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efna­reglurnar (REACH)), sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla II. viðauka samnings­ins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 280/2024, þann 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 856-861.
  88) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2462 frá 19. september 2024 um breyt­ingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar úndekaflúoróhexansýru (PFHxA), sölt hennar og skyld efnasambönd, sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 282/2024, þann 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 868-874.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1328 frá 16. maí 2024 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi oktametýlsýklótetrasíloxani (D4), dekametýlsýklópentasíloxani (D5) og dódekametýlsýklóhexasíloxani (D6)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efna­reglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2462 frá 19. september 2024 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar úndekaflúoróhexansýru (PFHxA), sölt hennar og skyld efnasambönd.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 13. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica