Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

573/2025

Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2564 frá 19. júní 2024 um breyt­ingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum, sem vísað er til í tl. 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 283/2024, þann 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 875-894.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtalinni EES-gerð:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2564 frá 19. júní 2024 um breyt­ingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 13. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica