Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

636/2024

Reglugerð um (17.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/707 frá 19. desember 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar hættuflokka og viðmiðanir fyrir flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 186-218.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/197 frá 19. október 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 219-237.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/707 frá 19. desember 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar hættuflokka og viðmiðanir fyrir flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna.
  2. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/197 frá 19. október 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. maí 2024.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica