Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

517/2023

Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:

187. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/825 frá 17. mars 2022 um breytingu á II. viðauka við framselda reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfisbundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12nza, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 306/2022, þann 9. desember 2022. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 26. janúar 2023, bls. 169-187.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2022/825 frá 17. mars 2022 um breytingu á II. viðauka við framselda reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfisbundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 26. maí 2023.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica