Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

171/2023

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

1. gr.

Einn stafliður bætist við 31. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/388 frá 8. mars 2022 um breyt­ingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 um vöktun á losun gróðurhúsa­loftteg­unda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21 apj í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 286/2022, frá 28. október 2022, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 17. nóvember 2022, bls. 62-64.

 

2. gr.

Einn stafliður bætist við 33. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 frá 14. mars 2022 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráð­anda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as í XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegur EES-nefndarinnar nr. 287/2022 frá 28. október 2022, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 17. nóvember 2022, bls. 65-201.

 

3. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/388 frá 8. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2066 um vöktun á losun gróðurhúsa­loftteg­unda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/455 frá 14. mars 2022 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráð­anda loftfars er tilgreint.

 

4. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. mgr. 21. gr. b. og 5. mgr. 9. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál, með síðari breytingum.

Reglugerð þessi tekur þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 8. febrúar 2023.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica