1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
|
cc) |
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/849 frá 11. mars 2021 um breytingu á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tæknilegum og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2022 frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 21. apríl 2022, bls. 143-159. | |
| dd) | Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1962 frá 12. ágúst 2021 um leiðréttingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. maí 2022, bls. 579-580. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. maí 2022.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sigríður Auður Arnardóttir.