Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1337/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

1. gr.

Við 32. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/447 til ákvörðunar á uppfærðum viðmiðunargildum fyrir úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir tímabilið 2021-2025 á grundvelli 2. mgr. 10. gr. a tilskipunar 2003/87/EB, sem vísað er til í tölulið 21 alo, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 221/2021, frá 9. júlí 2021, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60 frá 16. september 2021, bls. 185-190.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1204 frá 10. maí 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/856 að því er varðar málsmeðferð við umsókn og valferli hjá nýsköpunarsjóðnum, sem vísað er til í tölulið 21alk, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 309/2021, frá 29. október 2021, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 18. nóvember 2021, bls. 231-234.

2. gr.

Við 33. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/662 frá 22. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 312/2021 frá 29. október 2021, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af ákvörðun þessari, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 18. nóvember 2021, bls. 235-381.

3. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/447 til ákvörðunar á uppfærðum viðmiðunargildum fyrir úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir tímabilið 2021-2025 á grundvelli 2. mgr. 10. gr. a tilskipunar 2003/87/EB.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1204 frá 10. maí 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/856 að því er varðar málsmeðferð við umsókn og valferli hjá nýsköpunarsjóðinum.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/662 frá 22. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 9. gr., 4. mgr. 16. gr., og 27. gr. b. laga um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum.

Reglugerð þessi tekur þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 15. nóvember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.