Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

1335/2021

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 506/2007, um takmörkun efna í vélknúnum ökutækjum.

1. gr.

Í stað liðar 14 í viðauka reglugerðarinnar kemur nýr liður, svohljóðandi:

  1. Sexgilt króm sem tæringarvarnarefni í kol­stáls­kælikerfi ísogskæla, upp að 0,75%, miðað við þyngd, í kælilausninni:
    1. sem eru hannaðir til að starfa að fullu eða að hluta til með raknúnum hitara, sem nýtir rafaflsinntak sem nemur að meðal­tali < 75W við stöðug notkunarskilyrði,
    2. sem eru hannaðir til að starfa að fullu eða að hluta til með raknúnum hitara, sem nýtir rafaflsinntak sem nemur að meðal­tali ≥ 75W við stöðug notkunarskilyrði,
    3. sem eru hannaðir til að starfa að fullu með hitara sem er ekki rafknúinn.

Ökutæki, gerðarviðurkennd fyrir 1. janúar 2020, og varahlutir í þessi ökutæki Ökutæki, gerðarviðurkennd fyrir 1. janúar 2026, og varahlutir í þessi ökutæki

X

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/362 frá 17. desember 2019 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/53/EB um úr sér gengin ökutæki að því er varðar undanþágu fyrir sexgilt króm sem tæringar­varnarefni í kolstálskælikerfi ísogskæla í húsbílum, sem vísað er til í tölul. 32e í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 186/2021, þann 11. júní 2021.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í c-lið 1. tölul. og 11. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 15. nóvember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica