Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

617/2021

Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/701 frá 5. apríl 2019 um að koma á skrá yfir almenn heiti innihaldsefna til að nota við merkingar á snyrtivörum, sem vísað er til í tölulið 13a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 231/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 54-423.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1682 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2021 frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 22 frá 25. mars 2021, bls. 582-584.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1683 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2021 frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 22 frá 25. mars 2021, bls. 585-592.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1684 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2021 frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 22 frá 25. mars 2021, bls. 593-594.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/701 frá 5. apríl 2019 um að koma á skrá yfir almenn heiti innihaldsefna til að nota við merkingar á snyrtivörum.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1682 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1683 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1684 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.