Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

615/2021

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/217 frá 4. október 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að framförum í tækni og vísindum og um leiðréttingu á þeirri reglugerð, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2020 frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 647-660.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1182 frá 19. maí 2020 um breytingu á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tæknilegum og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 200/2020 frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 661-674.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1413 frá 29. júní 2020 um að leiðrétta sænsku tungumálaútgáfuna af I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2021 frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22 frá 25. mars 2021, bls. 499.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1676 frá 31. ágúst 2020 um breytingu á 25. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna að því er varðar sérhannaða málningu, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2021 frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 8. apríl 2021, bls. 301-302.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1677 frá 31. ágúst 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna til þess að bæta framkvæmanleika upplýsingakrafna sem tengjast viðbúnaði í neyðartilvikum sem varða lýðheilsu, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 110/2021 frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 8. apríl 2021, bls. 303-323.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/217 frá 4. október 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að framförum í tækni og vísindum og um leiðréttingu á þeirri reglugerð.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1182 frá 19. maí 2020 um breytingu á 3. hluta VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tæknilegum og vísindalegum framförum.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1413 frá 29. júní 2020 um að leiðrétta sænsku tungumálaútgáfuna af I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1676 frá 31. ágúst 2020 um breytingu á 25. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna að því er varðar sérhannaða málningu.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1677 frá 31. ágúst 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna til þess að bæta framkvæmanleika upplýsingakrafna sem tengjast viðbúnaði í neyðartilvikum sem varða lýðheilsu.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.