Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

613/2021

Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1477 frá 2. október 2018 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivörum, sem innihalda etýlbútýlasetýlamínóprópíónat, sem Belgía lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzzp, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2019, þann 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 8. apríl 2021, bls. 92-94.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1305 frá 26. september 2018 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir flokki skyldra sæfivara, sem inniheldur deltametrín, sem Svíþjóð lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzzu, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2019, þann 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87 frá 17. desember 2020, bls. 178-179.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1086 frá 23. júlí 2020 um að samþykkja íkaridín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19, sem vísað er til í tl. 12zzzzzzp, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2021, þann 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 8. apríl 2021, bls. 324-326.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1985 frá 13. desember 2018 um að samþykkja ekki Willaertia magna c2c maky sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 11, sem vísað er til í tl. 12zzzzzv, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2019, þann 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 8. apríl 2021, bls. 95-96.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1771 frá 26. nóvember 2020 um að samþykkja hvarfmassa perediksýru og peroxýoktansýru sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4, sem vísað er til í tl. 12zzzzzzq, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2021, þann 23. apríl 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 12. maí 2021, bls. 71-74.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1477 frá 2. október 2018 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir sæfivörum, sem innihalda etýlbútýlasetýlamínóprópíónat, sem Belgía lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1305 frá 26. september 2018 um skilmála og skilyrði leyfis fyrir flokki skyldra sæfivara, sem inniheldur deltametrín, sem Svíþjóð lagði fram í samræmi við 36. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1086 frá 23. júlí 2020 um að samþykkja íkaridín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1985 frá 13. desember 2018 um að samþykkja ekki Willaertia magna c2c maky sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 11.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1771 frá 26. nóvember 2020 um að samþykkja hvarfmassa perediksýru og peroxýoktansýru sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2, 3 og 4.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.