Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1172/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 777/2019 um endurvinnslu skipa.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast sjö nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2321 frá 19. desember 2016 um snið vottorðs um tiltækileika til endurvinnslu sem gefið er út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa, sem vísað er til í tl. 32fhb í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 18-22.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2322 frá 19. desember 2016 um snið yfirlýsingar um verklok endurvinnslu skipa sem krafist er samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa, sem vísað er til í tl. 32fhc í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 23-24.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2323 frá 19. desember 2016 um að koma á fót Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa, sem vísað er til í tl. 32fhd í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 25-34.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2324 frá 19. desember 2016 um snið tilkynningar um áætlað upphaf endurvinnslu skipa sem krafist er samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa, sem vísað er til í tl. 32fhe í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 35-36.
  5. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2325 frá 19. desember 2016 um snið vottorðs um birgðaskrá yfir hættuleg efni sem gefið er út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa, sem vísað er til í tl. 32fhf í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 37-41.
  6. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/684 frá 4. maí 2018 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 til að uppfæra Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013, sem vísað er til í tl. 32fhd í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2019, frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 30. janúar 2020, bls. 42-53.
  7. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1906 frá 30. nóvember 2018 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 til að uppfæra Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar sem komið var á fót samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013, sem vísað er til í tl. 32fhd í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, 12. mars 2020, bls. 30-44.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2321 frá 19. desember 2016 um snið vottorðs um tiltækileika til endurvinnslu sem gefið er út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2322 frá 19. desember 2016 um snið yfirlýsingar um verklok endurvinnslu skipa sem krafist er samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2323 frá 19. desember 2016 um að koma á fót Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2324 frá 19. desember 2016 um snið tilkynningar um áætlað upphaf endurvinnslu skipa sem krafist er samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa.
  5. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2325 frá 19. desember 2016 um snið vottorðs um birgðaskrá yfir hættuleg efni sem gefið er út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa.
  6. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/684 frá 4. maí 2018 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 til að uppfæra Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013.
  7. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1906 frá 30. nóvember 2018 um breytingu á framkvæmdarákvörðun (ESB) 2016/2323 til að uppfæra Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar sem komið var á fót samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 64. gr. b. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.