Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1171/2020

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1479 frá 3. október 2018 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir súlfúrýlflúoríði til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8, sem vísað er til í tl. 12zzzzzq, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2019, þann 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 10-11.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1622 frá 29. október 2018 um að samþykkja ekki tiltekin virk efni í sæfivörur samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12zzzzzr, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2019, þann 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 12-15.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1623 frá 29. október 2018 skv. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 um moskítóflugur sem eru sýktar á tilbúinn hátt af Wolbachia og notaðar vegna smitferjuvarna, sem vísað er til í tl. 12zzzzzs, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2019, þann 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 16-17.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1479 frá 3. október 2018 um frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir súlfúrýlflúoríði til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1622 frá 29. október 2018 um að samþykkja ekki tiltekin virk efni í sæfivörur samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1623 frá 29. október 2018 skv. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 um moskítóflugur sem eru sýktar á tilbúinn hátt af Wolbachia og notaðar vegna smitferjuvarna.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.