Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1169/2020

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/11 frá 29. október 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna að því er varðar upplýsingar um viðbúnað í neyðartilvikum sem varða lýðheilsu, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2020 frá 14. júlí 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 13. ágúst 2020, bls. 162-168.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/11 frá 29. október 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna að því er varðar upplýsingar um viðbúnað í neyðartilvikum sem varða lýðheilsu.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.