1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
63) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1390 frá 31. júlí 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hann að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zza, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 12. nóvember 2020, bls. 443-950. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1390 frá 31. júlí 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hann að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)).
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. nóvember 2020.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.