Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1167/2020

Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast 7 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/29 frá 14. janúar 2020 um að samþykkja ekki tannín úr vínviðnum Vitis vinifera sem grunnefni í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, sem vísað er til í tl. 13zzzzzzzzzzm XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2020 frá 12. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 13. ágúst 2020, bls. 127-128.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/23 frá 13. janúar 2019 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu þíaklópríði, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tl. 13zzzzzzzzzzl XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2020 frá 12. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 176-179.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2094 frá 29. nóvember 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 að því er varðar framlengingu á samþykkistímabilunum fyrir virku efnin benflúralín, dímoxýstróbín, flúasínam, flútólaníl, mankóseb, mekópróp-P, mepíkvat, metíram, oxamýl og pýraklóstróbín, sem vísað er til í tl. 13a XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2020 frá 12. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 173-175.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1675 frá 4. október 2019 um endurnýjun á samþykki fyrir virka efninu Verticillium albo-atrum af stofni WCS850 sem áhættulitlu efni, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tl. 13zzzzzzzzzzn XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2020 frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 322-326.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/17 frá 10. janúar 2020 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu klórpýrifosmetýli, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tl. 13zzzzzzzzzzo XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2020 frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 327-329.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/18 frá 10. janúar 2020 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu klórpýrifosi, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tl. 13zzzzzzzzzzp XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2020 frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 330-332.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/103 frá 17. janúar 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 844/2012 að því er varðar samræmda flokkun virkra efna sem vísað er til í tl. 13f XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2020 frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 333-336.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/29 frá 14. janúar 2020 um að samþykkja ekki tannín úr vínviðnum Vitis vinifera sem grunnefni í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/23 frá 13. janúar 2019 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu þíaklópríði, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2094 frá 29. nóvember 2019 um breytingu á á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 540/2011 að því er varðar framlengingu á samþykkistímabilunum fyrir virku efnin benflúralín, dímoxýstróbín, flúasínam, flútólaníl, mankóseb, mekópróp-P, mepíkvat, metíram, oxamýl og pýraklóstróbín.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1675 frá 4. október 2019 um endurnýjun á samþykki fyrir virka efninu Verticillium albo-atrum af stofni WCS850 sem áhættulitlu efni, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/17 frá 10. janúar 2020 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu klórpýrifosmetýli, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/18 frá 10. janúar 2020 um að endurnýja ekki samþykki fyrir virka efninu klórpýrifosi, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/103 frá 17. janúar 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 844/2012 að því er varðar samræmda flokkun virkra efna.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.