Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

522/2020

Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/957 frá 11. júní 2019 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi (3,3,4,4,5,5,6,6,7,7,8,8,8-trídekaflúoróoktýl)sílanetríóli og TDFA) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 296/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 302-304.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1691 frá 9. október 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2020 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 68-70.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1692 frá 9. október 2019 um beitingu tiltekinna ákvæða um skráningu og samnýtingu gagna í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 eftir að síðasti eindagi skráningar efna í skráningarbið er liðinn, sem vísað er til í tölulið 12zzzzzzc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 23. apríl 2020, bls. 655-657.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/957 frá 11. júní 2019 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi (3,3,4,4,5,5,6,6,7,7,8,8,8-trídekaflúoróoktýl)sílanetríóli og TDFA) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1691 frá 9. október 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1692 frá 9. október 2019 um beitingu tiltekinna ákvæða um skráningu og samnýtingu gagna í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 eftir að síðasti eindagi skráningar efna í skráningarbið er liðinn.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. maí 2020.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.