Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1006/2019

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/680 frá 30. apríl 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 172-173.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/681 frá 30. apríl 2019 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 174-175.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 231/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 82 frá 10. október 2019, bls. 176-179.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/831 frá 22. maí 2019 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 232/2019 frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 86 frá 24. október 2019, bls. 406-440.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/680 frá 30. apríl 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/681 frá 30. apríl 2019 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/698 frá 30. apríl 2019 um breytingu á III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/831 frá 22. maí 2019 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölulið 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.