Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1005/2019

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/636 frá 23. apríl 2019 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2019, þann 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 86 frá 24. október 2019, bls. 388-394.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/636 frá 23. apríl 2019 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.