Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

821/2019

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 365/2014 um skráningarkerfi fyrir losunarheimildir.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. tl. svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/401 frá 19. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 389/2013 um stofnun skrár Sambandsins, sem vísað er til í lið 21ana í XX. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar nr. 178/2019 frá 14. júní 2019, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58 frá 18. júlí 2019, bls. 60-61.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/401 frá 19. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 389/2013 um stofnun skrár Sambandsins.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. g. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.