Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

739/2018

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 834/2017 um vöktun, vottun og skýrslugjöf vegna losunar koldíoxíðs frá sjóflutningum.

1. gr.

Ein ný gerð bætist við 2. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1928 frá 4. nóvember 2016 um ákvörðun á farmi sem fluttur er með skipum, sem falla undir aðra flokka en farþegaskip, ekjuskip og gámaskip, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum, sem vísað er til í tölulið 21awc, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2018, frá 23. mars 2018 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XIII. og XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33, frá 17. maí 2018, bls. 356 - 359.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtalinni EES-gerð:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1928 frá 4. nóvember 2016 um ákvörðun á farmi sem fluttur er með skipum, sem falla undir aðra flokka en farþegaskip, ekjuskip og gámaskip, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 21. gr. a. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. júlí 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.