Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

601/2018

Reglugerð um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2392 frá 13. desember 2017 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um áframhald takmörkunar gildissviðs flugstarfsemi til þess að undirbúa innleiðingu hnattræns samkomulags frá 2021.

1. gr.

Eftirfarandi EES-gerð skal öðlast gildi hér á landi:

Reglugerð um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2392 frá 13. desember 2017 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um áframhald takmörkunar gildissviðs flugstarfsemi til þess að undirbúa innleiðingu hnattræns samkomulags frá 2021 sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 99/2018, frá 27. apríl 2018, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 33/2018 frá 17. maí 2018, bls. 245-252.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2392 frá 13. desember 2017 sem breytir tilskipun 2003/87/EB um áframhald takmörkunar gildissviðs flugstarfsemi til þess að undirbúa innleiðingu hnattræns samkomulags frá 2021 sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 99/2018, frá 27. apríl 2018.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, sbr. 1. gr. laga um breytingu á þeim lögum nr. 14/2018.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. maí 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.