Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

555/2018

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 160/2017 um umhverfismerki.

1. gr.

Við 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. liður, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1941 frá 24. október 2017 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 66/2010 um umhverfismerki ESB, sem vísað er til í tölul. 2a í I. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2018 frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 8. mars 2018, bls. 310-311.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar reglugerð framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1941 frá 24. október 2017 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 66/2010 um umhverfismerki ESB.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. maí 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.