1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 45. liður, sem orðast svo:
45) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2235 frá 12. desember 2016 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi bisfenóli A) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölul. 12zc XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2017, þann 3. febrúar 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 16. mars 2017, bls. 630-632. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2235 frá 12. desember 2016 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi bisfenóli A) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. maí 2017.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.