Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

911/2016

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/107 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki sýbútrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21, sem vísað er til í tl. 12zzzd, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 207-208.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/108 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki 2-bútanon, peroxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1 og 2, sem vísað er til í tl. 12zzze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 209.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/109 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki PHMB (1600; 1.8) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 6 og 9, sem vísað er til í tl. 12zzzf, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 210-211.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/107 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki sýbútrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/108 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki 2-bútanon, peroxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1 og 2.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/109 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki PHMB (1600; 1.8) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 6 og 9.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 20. október 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.