1. gr.
Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir sem orðast svo:
l) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1190 frá 20. júlí 2015 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 267/2015, þann 30. október 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 480-486. | |
m) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1298 frá 28. júlí 2015 um breytingu á II. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 268/2015, þann 30. október 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 487-488. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:
a) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1190 frá 20. júlí 2015 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. | |
b) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1298 frá 28. júlí 2015 um breytingu á II. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. |
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. mars 2016.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.