Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

299/2016

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, l-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1221 frá 24. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 303/2015, þann 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 28. janúar 2016, bls. 715-728.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1221 frá 24. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. mars 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.